„En við erum BÚIN að virkja fimm sinnum meira en nágrannalöndin. Við erum þegar orðin orkustórveldi […] En umræðan er svo klikkuð. Menn láta eins og það „MEGI EKKERT GERA”, þegar orkuframleiðslan er þegar orðin fimmföld á við það sem þekkist hjá nokkurri þjóð.”

Föstudaginn 17. september boða EDDA – öndvegissetur og Framtíðarlandið til umræðufundar sem byggir á grein Andra Snæs Magnasonar „Í landi hinna klikkuðu karlmanna“ sem birtist í Fréttablaðinu nú á laugardaginn 11. september. Umræðurnar fara fram kl. 15.00-16.30, í stofu 105, Háskólatorgi.

Frummælendur:

Andri Snær Magnason, rithöfundur

Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor í hagfræði og alþingismaður

Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur

Fundarstjóri: Ástráður Eysteinsson, sviðsforseti Hugvísindasviðs