Seinni fyrirlestur Kunda Dixit
Í fyrirlestrinum mun Kunda Dixit fjalla um átakafréttamennsku. Hann hefur skrifað mikið um blaðamennsku og kennir rannsókna og átakablaðamennsku (conflict reporting) við Kathmanduháskóla og fleira sem teng ist menntun og þjálfun blaðamanna. Fyrir allnokkrum árum skrifaði hann bók um skyldur blaðamanna sem vakti mikla athygli. Reynsla hans af borgarstyrjöldinni í Nepal hefur skerpt og á margan hátt breytt afstöðu hans til fréttamennsku og hlutverks blaðamanna. Kunda Dixit hefur skrifað um borgarstyrjöldina og gaf út þriggja bóka ljósmyndaverk um hana. Myndum og textum úr bókaröðinni var síðan stillt upp til sýningar í Museum of Peace í Kathmandu í Nepal, safni sem Kunda Dixit átti þátt í að stofna. Í bók sem kom út á þessu ári, Dateline Earth: Journalism As if the Planet Mattered, fjallar Dixit um viðhorf sín, aðferðir sínar og nálgun í fréttamennsku og hugsjónir.
Ísland hefur átt í innbyrðis átökum á liðnum árum. Þessi átök hafa verið og eru erfið þótt ekki séu þau háð með vopnum. Enn er óljóst hvort íslenskt samfélag þolir alla þá sundrungu sem átökunum fylgja. Kunda Dixit hefur áratugareynslu af blaðamennsku um áþekk viðfangsefni.
Fundarstjóri: Jón Guðni Kristjánsson, fréttamaður hjá RÚV.
Nánar um KUNDA DIXIT
Kunda Dixit útskrifaðist í blaðamennsku frá Columbia Univeristy School of Journalism. Hann hefur einnig háskólabakgrunn í jarðfræði og fylgist náið með áhrifum lofstslagsbreytinga á jökla Himalæjafjalla, fallvötn og samfélög manna og þjóðfélagsleg átök sem tengjast loftslagsbreytingum og nýtingu vatns. Kunda er rit stjóri, blaðamaður, rithöfundur og útgefandi og hefur unnið bæði heima og erlendis, t.d. sem fréttamaður hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir breska ríkisútvarpið, BBC, en einnig fyrir Reuters, Time-Life og The Telegraph. Þá eru störf hans sem frumkvöðull að stofnun fréttastofuneta í Suður og Suðaustur Asíu athyglisverð þar sem hann vann ýmist sem ritstjóri eða framkvæmdastjóri og hefur þannig viðað að sér mikilli reynslu og þekkingu. Kunda Dixit hefur gefið út bækur um borgarstríðið í Nepal, blaðamennsku og umhverfismál. Hann er höfundur Dateline Earth: Journalism As if the Planet Mattered sem er kennslubók fyrir blaðmenn. Hann hefur einnig skrifað þrjár bækur um borgarastyrjöldina í Nepal: A People War, Never Again og People After War. Kunda Dixit er gestakennari við fjölmiðladeildina við Kathmanduháskóla.
Sjá nánar
http://www.nepalitimes.com.np/issue/2009/12/04/Nation/16562 http://www.himalmag.com/Chartingchange_nw3565.html
Nánari upplýsingar veita
Irma Erlingsdóttir, 525 4634, irma@hi.is Annadís G. Rúdólfsdóttir, 525 4278, annadis@hi.is